Fornbílaendursmíði
Heil endursmíði á bílum sem eiga að lifa næstu fjörutíu árin.
Fornbíll sem hefur staðið úti, eða inni í óupphituðu húsi, er sjaldan ryðgaður á einum stað. Þegar bíllinn kemur inn förum við yfir hann lið fyrir lið: hvað er heilt, hvað má bæta og hvað þarf að smíða upp á nýtt. Þú fær að vita hvað við finnum áður en við byrjum að skera.
Allt sem er farið er skorið út. Nýr bútur er mótaður í sömu lögun, soðinn í og suðan slípuð þar til flöturinn er beinn og samskeytin sjást ekki. Á bíl sem er hálfrar aldar gamall eru varahlutir oft hvergi fáanlegir — þá smíðum við bútinn eftir þeim gamla, eða eftir máli af bílnum sjálfum.
Heil endursmíði tekur vikur og stundum mánuði, og þú fylgist með á meðan. Það er líka hægt að taka verkið í áföngum: undirvagn og silsar í vetur, bretti og hurðir næsta vetur, eftir því hvernig það passar þér.
Hvað felst í þessu
- Ástandsmat og verðbil áður en verkið byrjar
- Bútar smíðaðir þegar varahlutir eru ekki fáanlegir
- Hægt að taka verkið í áföngum
- Ryðvörn þegar boddývinnu er lokið
- Myndir af ferlinu, frá skemmd til fullkláraðs bíls



