Fara beint í efnið
Boddy Viðgerðir Henriks

Land Cruiser BJ42 — bíllinn kominn saman á ný

Lokaáfanginn: nýjar boddýfestingar, hurðir og framendi á sinn stað, hljóðeinangrun í pallinn — og BJ42-inn út úr húsi á eigin hjólum.

Bíll
Toyota Land Cruiser BJ42
Þjónusta
FornbílaendursmíðiRyðvörn

Hér kemur bíllinn saman. Boddýið fór á grindina á nýjum festingum og gúmmíum, hurðir og karmar voru settir á, framendi, grill og ljós á sinn stað, og bíllinn stóð aftur á eigin hjólum.

Áður en gólfið fór á var hljóðeinangrun lögð í pallinn. Það er lítið verk á meðan allt er opið og talsvert ónæði að gera það síðar.

Myndirnar af bílnum fyrir utan verkstæðið eru teknar eftir þennan áfanga. Fornbíll sem hefur verið tekinn í gegn svona á að geta staðið úti í íslenskum vetri — og það er nákvæmlega það sem hann er að gera á síðustu myndinni.

Myndir af verkinu

Nýjar boddýfestingar og gúmmí tilbúin fyrir Land Cruiser BJ42Í vinnslu
Nýjar festingar og gúmmí undir boddýið.
Boddý Land Cruiser BJ42 sett á grindina inni á verkstæðiÍ vinnslu
Land Cruiser BJ42 á grind með vélarrúm opiðÍ vinnslu
Hvítt boddý Land Cruiser BJ42 á grind, séð frá hliðÍ vinnslu
Hljóðeinangrun lögð í pall Land Cruiser BJ42Í vinnslu
Hljóðeinangrun í pallinn áður en gólfið fór á.
Hurð sett á Land Cruiser BJ42 eftir uppgerðÍ vinnslu
Land Cruiser BJ42 að framan með hurðarplötu á gólfiÍ vinnslu
Innri hliðarplata í Land Cruiser BJ42 komin á sinn staðÍ vinnslu
Afturhjólskál og bremsuskál á Land Cruiser BJ42 fyrir frágangFyrir
Undirvagn og drifrás Land Cruiser BJ42 séð neðan fráFyrir
Land Cruiser BJ42 á lyftu með framenda kominn áÍ vinnslu
Hvítur Land Cruiser BJ42 inni á verkstæði með húddið opiðÍ vinnslu
Land Cruiser BJ42 kominn saman, séður frá hlið inni á verkstæðiEftir
Land Cruiser BJ42 að framan með Toyota-grilli eftir uppgerðEftir
Land Cruiser BJ42 að framan á lyftu að kvöldiEftir
Land Cruiser BJ42 fullkláraður að framan með ljósin kveiktEftir
Land Cruiser BJ42 að aftan með varadekk og ljós kveiktEftir
Land Cruiser BJ42 fyrir utan verkstæðið að kvöldiEftir
Uppgerður Land Cruiser BJ42 í snjó fyrir utan Boddy Viðgerðir HenriksEftir
Bíllinn tilbúinn, fyrir utan verkstæðið í Suðurhrauni.

Þjónustan á bak við verkið

Fleiri verk

Sjá öll verk
Hvít VW bjalla fyrir utan verkstæðið áður en gólfviðgerð hófst

Volkswagen Bjalla

VW bjalla — nýjar gólfplötur soðnar í

Gólfið í bjöllunni var farið beggja vegna. Nýjar gólfplötur voru settar í, soðnar og botninn varinn — bíll sem stóð á gatslitnu gólfi stendur nú á heilu.

Lesa meira
Útskorinn bútur úr innri silsa á Land Cruiser, gegnumétinn af ryði

Toyota Land Cruiser

25 ára Land Cruiser í silsaviðgerð

Ryð hafði étið sig gegnum silsann á tuttugu og fimm ára Land Cruiser, bæði innra byrðið og ytri plötuna. Allt sem var farið var skorið út, nýir bútar soðnir í og neðri kanturinn varinn.

Lesa meira

Hafðu samband

Segðu okkur hvað bíllinn þarf. Það er fljótlegast að hringja, og sama númer tekur við myndum á WhatsApp.

Heimilisfang

Boddy Viðgerðir Henriks
Suðurhraun 2b
210 Garðabær

Plús-kóði: 33HF+CM Garðabær

Fá leiðsögn

Opnunartími

Mán–Fös
09:00–17:00
Lau–Sun
Lokað

Hringdu áður en þú kemur með stærra verk, þá er tekið á móti bílnum á réttum tíma.

Bóka tímaHringja