Fara beint í efnið
Boddy Viðgerðir Henriks

Ryðbætingar og ryðviðgerðir

Ryðið skorið út og nýtt járn soðið í — ekki fyllt yfir.

Ryð sem búið er að fylla og sprauta yfir kemur alltaf aftur, og þá verra en áður. Hjá okkur er ryðbæting gerð þannig að skemmda járnið er skorið út, nýr bútur mótaður í sömu lögun og soðinn í, og suðan slípuð þar til flöturinn er beinn.

Við leitum líka að því sem sést ekki að utan. Ryð byrjar að innan: í fölsum, undir listum, í kringum afrennslisrör og þar sem tveir plötubútar liggja þétt saman og halda vatni. Blaðra í lakkinu á stærð við krónu getur verið handarstór þegar búið er að opna hana.

Algengustu staðirnir eru gólf og botn, hjólskálar og brettakantar, gluggakarmar í kringum fram- og afturrúðu, og grindin og festingarnar undir bílnum. Áður en soðið er hreinsum við ryðið af í kringum viðgerðarsvæðið niður í hreint járn, svo nýja suðan fái heilt efni að festast við.

Umfangið ræðst af bílnum. Lítil bæting á bretti getur farið út sama dag. Ef ryðið er komið í burðarvirki — A-stólpa, þröskulda, gólf eða grind — er verkið stærra, og þá förum við yfir það með þér áður en við byrjum. Sama vinna á við um sendibíla, vinnubíla, kerrur og hjólhýsi.

Hvað felst í þessu

  • Skemmda járnið skorið út, ekki fyllt yfir
  • Gólf og botn, hjólskálar og brettakantar
  • Gluggakarmar í kringum fram- og afturrúðu
  • Grind, undirvagn og festingar
  • Ryðhreinsun niður í hreint járn fyrir suðu
  • Smærri bætingar oft afgreiddar samdægurs
  • Líka sendibílar, vinnubílar, kerrur og hjólhýsi

Bóka tíma765 0473Öll þjónusta

Verk í þessum flokki

Sjá öll verk
Hvít VW bjalla fyrir utan verkstæðið áður en gólfviðgerð hófst

Volkswagen Bjalla

VW bjalla — nýjar gólfplötur soðnar í

Gólfið í bjöllunni var farið beggja vegna. Nýjar gólfplötur voru settar í, soðnar og botninn varinn — bíll sem stóð á gatslitnu gólfi stendur nú á heilu.

Lesa meira
Útskorinn bútur úr innri silsa á Land Cruiser, gegnumétinn af ryði

Toyota Land Cruiser

25 ára Land Cruiser í silsaviðgerð

Ryð hafði étið sig gegnum silsann á tuttugu og fimm ára Land Cruiser, bæði innra byrðið og ytri plötuna. Allt sem var farið var skorið út, nýir bútar soðnir í og neðri kanturinn varinn.

Lesa meira

Spurt og svarað

Er ódýrara að fylla yfir ryðið?

Í fyrstu, en það er skammgóður vermir. Fylling stöðvar ekki ryð sem heldur áfram að vinna innan frá, og þá þarf að vinna sama flötinn aftur eftir eitt til tvö ár — í stærra verki en áður.

Gerið þið við ryð í gólfi bílsins?

Já. Ryð í gólfi og botni er skorið út og nýtt járn soðið í, rétt eins og í silsum og hjólskálum. Gólfið er hluti af burðarvirki bílsins, svo það er gert þannig að það haldi — ekki bara þannig að gatið lokist.

Hvað tekur ryðbæting langan tíma?

Ein afmörkuð bæting á bretti eða hurð er oft dagsverk. Ryð í burðarvirki, eins og í A-stólpa eða þröskuldi, tekur lengri tíma því þá þarf að opna, styrkja og sjóða meira.

Er bíllinn þinn með þetta?

Hringdu og lýstu því sem þú sérð, þá segjum við þér hvað þarf að skoða.

Heimilisfang

Boddy Viðgerðir Henriks
Suðurhraun 2b
210 Garðabær

Plús-kóði: 33HF+CM Garðabær

Fá leiðsögn

Opnunartími

Mán–Fös
09:00–17:00
Lau–Sun
Lokað

Hringdu áður en þú kemur með stærra verk, þá er tekið á móti bílnum á réttum tíma.

Bóka tímaHringja