38 tommu breyttur Land Cruiser 90 — nýtt gólf smíðað
Gólfið í breyttum Land Cruiser 90 var farið á stóru svæði. Nýjar plötur voru mótaðar eftir því gamla, soðnar í og flöturinn varinn.
- Bíll
- Toyota Land Cruiser 90
Innréttingin fór út og þá kom í ljós hvað lá undir teppinu: ryð yfir stórt svæði í gólfinu, verst þar sem sætisfestingar og falsar liggja. Á breyttum bíl sem er notaður allt árið er þetta ekki óalgengt — vatn og sandur eiga greiða leið inn og enga út.
Nýja gólfið var mótað eftir því gamla. Platan var mæld, merkt og beygð hér á verkstæðinu, því gólfplata í þessa bíla fæst ekki tilbúin. Gamla járnið var skorið burt þar til hreint járn var eftir á öllum köntum og nýja platan soðin í.
Að lokum var flöturinn þéttur og varinn, bæði að ofan og neðan. Gólf er burðarvirki: það heldur sætisfestingum og tekur við krafti í árekstri, þannig að það þarf að gera almennilega en ekki bara loka gatinu.
Myndir af verkinu
Fyrir
Fyrir
Fyrir
Í vinnslu
Eftir
Eftir
Eftir


