Ford Excursion — ryð í silsa undir hurðum
Stór bíll, langur silsi og ryð sem náði eftir endilöngu. Hurðirnar af og skemmdin mynduð áður en byrjað var.
- Bíll
- Ford Excursion
Á Ford Excursion er silsinn langur og hurðirnar þungar. Ryð sem byrjar í öðrum endanum fær því góðan tíma til að vinna sig eftir endilöngu áður en nokkur tekur eftir því.
Hurðirnar voru teknar af og klæðningin losuð. Þá sást hvað lá undir: ryðið var komið gegnum neðri kantinn á löngum kafla og hafði étið sig inn undir gólfkantinn.
Viðgerðin er stærri en á fólksbíl en eðlið það sama: skera út, sjóða nýtt í og verja holrúmið áður en lokað er. Á bíl í þessari stærð er silsinn burðarvirki sem tekur við þunga alls sem á honum hvílir.
Myndir af verkinu
Fyrir
Fyrir
Fyrir
Fyrir


