Lincoln pallbíll — horn á húsi og silsi
Ryð í horninu á húsinu og í silsanum undir hurð. Skorið út, nýtt járn soðið í og flöturinn undirbúinn fyrir frágang.
- Bíll
- Lincoln pallbíll
Hornið aftast á húsinu, þar sem það mætir silsanum, er einn af þessum stöðum þar sem þrjár plötur liggja saman. Þar er fals, þar er þéttiefni sem gefur sig með tímanum og þar kemst vatn inn.
Á þessum pallbíl var ryðið komið gegnum hornið og inn í silsann undir hurðinni. Klæðningin var tekin af, svæðið opnað og skorið út þar til hreint járn var eftir.
Nýir bútar voru mótaðir og soðnir í, bæði í hornið og silsann, og flöturinn slípaður og undirbúinn. Bíllinn fór héðan tilbúinn í frágang á lakki.
Myndir af verkinu
Fyrir
Í vinnslu
Í vinnslu
Eftir


