Camaro IROC-Z — botninn tekinn í gegn
Camaro-inn var klæddur niður og snúið á hliðina svo hægt væri að vinna botninn, gólfið og bitana eins og þeir lægju á borði.
- Bíll
- Chevrolet Camaro IROC-Z
Botninn á bíl er versti staðurinn til að vinna á — of lágt til að sitja, of hátt til að liggja, og allt fellur í augun. Þess vegna er bíllinn snúinn þegar verkið er stórt.
Camaro-inn var klæddur niður: rúður, innrétting, vélbúnaður og allt sem má taka úr. Skelin var síðan reist upp á hliðina svo gólf, bitar og hjólskálar lægju fyrir eins og á vinnuborði.
Þannig sést allt: hvar ryðið er, hvar er búið að gera við áður og hvar járnið er enn heilt. Það sem er farið er skorið út og nýtt soðið í, og flöturinn er beinn þegar bílnum er snúið til baka.
Myndir af verkinu
Fyrir
Í vinnslu
Í vinnslu
Í vinnslu
Í vinnslu


