Land Cruiser 100 — ryð í silsaendum og hjólskálarhorni
Hvítur Land Cruiser 100 með ryð þar sem það byrjar oftast á þessari gerð: í endum silsans og í horninu við afturhjólskálina.
- Bíll
- Toyota Land Cruiser 100
Á Land Cruiser 100 byrjar ryðið nánast alltaf á sömu stöðum. Endarnir á silsanum eru þar fremstir, bæði að framan þar sem sandurinn af dekkinu lendir og að aftan í horninu upp við hjólskálina. Þar mætast plötur, þar safnast raki og þaðan vinnur ryðið sig inn.
Myndirnar sýna ástandið þegar bíllinn kom inn: lakkið sprungið neðst á silsanum, ryðið komið gegnum kantinn og undirvörnin farin að losna í hjólskálinni. Klæðningin var tekin af svo sæist hversu langt inn skemmdin næði, því það sést hvorki utan frá né með því að banka.
Svona verk er afmarkað. Skemmda járnið er skorið út, nýr bútur mótaður eftir sömu bungu og soðinn í, flöturinn slípaður beinn og holrúmið varið áður en klæðningin fer aftur á. Ryð á þessum stað er líka það sem skoðun gerir athugasemd við, svo það borgar sig að taka það áður en það vex.
Myndir af verkinu
Fyrir
Fyrir
Fyrir
Fyrir
Fyrir


