Fara beint í efnið
Boddy Viðgerðir Henriks

Land Cruiser 120 — aftasti þverbiti endurnýjaður

Aftasti þverbitinn undir Land Cruiser 120 var gegnumétinn. Nýr biti var smíðaður og soðinn í hans stað.

Bíll
Toyota Land Cruiser 120
Þjónusta
Ryðbætingar og ryðviðgerðirBreytingar og sérsmíðiViðgerðir fyrir skoðun

Aftasti þverbitinn liggur lægst og aftast, beint í því sem dekkin þeyta upp. Á Land Cruiser 120 er hann tvöfaldur og heldur vatni, og þegar hann er farinn er hann gjarnan farinn alla leið í gegn.

Gamli bitinn var gegnumétinn á löngum kafla, með götum sem hönd komst í gegnum. Hann var skorinn úr og nýr biti smíðaður eftir honum, með sömu festingum og götum á sama stað, og soðinn í.

Þetta er burðarvirki: dráttarkrókur og afturfestingar hanga á þessum bita, og hann er eitt af því sem skoðunarmaður lítur á. Nýi bitinn var varinn áður en bíllinn fór út.

Myndir af verkinu

Gegnumétinn aftasti þverbiti undir Land Cruiser 120Fyrir
Gamli bitinn — götin voru handarstór.
Nýr aftasti þverbiti smíðaður og soðinn undir Land Cruiser 120Eftir
Nýr biti smíðaður eftir þeim gamla og soðinn í.

Þjónustan á bak við verkið

Fleiri verk

Sjá öll verk
Hvít VW bjalla fyrir utan verkstæðið áður en gólfviðgerð hófst

Volkswagen Bjalla

VW bjalla — nýjar gólfplötur soðnar í

Gólfið í bjöllunni var farið beggja vegna. Nýjar gólfplötur voru settar í, soðnar og botninn varinn — bíll sem stóð á gatslitnu gólfi stendur nú á heilu.

Lesa meira
Útskorinn bútur úr innri silsa á Land Cruiser, gegnumétinn af ryði

Toyota Land Cruiser

25 ára Land Cruiser í silsaviðgerð

Ryð hafði étið sig gegnum silsann á tuttugu og fimm ára Land Cruiser, bæði innra byrðið og ytri plötuna. Allt sem var farið var skorið út, nýir bútar soðnir í og neðri kanturinn varinn.

Lesa meira

Hafðu samband

Segðu okkur hvað bíllinn þarf. Það er fljótlegast að hringja, og sama númer tekur við myndum á WhatsApp.

Heimilisfang

Boddy Viðgerðir Henriks
Suðurhraun 2b
210 Garðabær

Plús-kóði: 33HF+CM Garðabær

Fá leiðsögn

Opnunartími

Mán–Fös
09:00–17:00
Lau–Sun
Lokað

Hringdu áður en þú kemur með stærra verk, þá er tekið á móti bílnum á réttum tíma.

Bóka tímaHringja